Lærðu að hugsa um húsið þitt
Hagnýtt tveggja kvölda námskeið fyrir alla þá sem vilja læra grunnatriði viðhalds fasteignar sinnar.
Farið er yfir helstu atriði sem snúa að:
fasteignakaupum
viðhaldi
raka- og mygluvörnum
framkvæmdum
samskiptum við iðnaðarmenn
Markmiðið er að þátttakendur öðlist betri skilning á fasteigninni sinni og geti tekið upplýstari ákvarðanir og fyrirbyggt kostnaðarsöm mistök.
Næsta námskeið verður haldið í haust og verður auglýst síðar
Vernd og viðhald fasteigna
-
Námskeiðið er haldið í Odda, húsnæði Háskóla Íslands nema annað sé tekið fram eða námskeiðið sé haldið utan höfuðborgarsvæðisins.
Við bendum á að námskeiðið er tvö kvöld frá 19:00 - 21:00 og skráningardagsetning á við fyrra kvöldið. Gert er ráð fyrir virkum umræðum á námskeiðinu. Námskeiðið kostar 29.500 kr. en mörg stéttarfélög niðurgreiða námskeiðið að hluta eða að fullu.
Nánari upplýsingar um staðsetningu og mætingu eru sendar á þáttakendur áður en námskeið hefst. Reikningur er sendur á þátttakendur áður en námskeiðið hefst en einnig er hægt að greiða við komu. Ef skráning á sér stað skömmu fyrir námskeið gæti upplýsingapóstur eða reikningur komið daginn fyrir námskeið.
Gert er ráð fyrir að greitt sé fyrir námskeiðið fyrir fyrsta námskeiðsdag. Þátttakendum sem ekki hafa greitt getur verið neitað um þátttöku.
-
Við kaup og sölu fasteigna er mjög margt sem þarf að hafa í huga. Þegar farið er út í fasteignakaup þarf að hafa góða yfirsýn yfir hvað þarf að skoða í fasteigninni og hvernig maður ber sig að við kaup fasteigna með tilliti til viðhalds og möguleika fasteignarinnar.
-
Fyrir flesta eru fasteignir þeirra dýrasta veraldlega eign. Til að geta hugsað almennilega um fasteignina þína þarftu að kunna skil á hvað felst í áhrifaríku viðhaldi, hvað það kostar og hvaða kröfur er hægt að gera til þess. Þá er einnig nauðsynlegt að þekkja hvernig komið er í veg fyrir rakaskemmdir og myglu.
-
Þegar ráðist er í framkvæmdir getur ýmislegt komið uppá. Því er mikilvægt að átta sig á hvernig best verður staðið að þeim með tilliti til stærðarhagkvæmni og forgangsröðun framkvæmda, ásamt því að huga þarf að eftirliti í stærri framkvæmdum.

