Markmið okkar er að auka vitund fasteignaeigenda um hvað skiptir máli þegar viðhald er annars vegar
Um okkur
Stefán Árni Jónsson, húsasmíðameistari og byggingariðnfræðingur, stofnaði Vernd og viðhald árið 2023 til að auka vitund og þekkingu viðskiptavina um ástand fasteigna, raka í húsum og margt fleira sem við kemur því að eiga fasteign. Stefán útskrifaðist úr húsasmíði árið 2019 og fór í framhaldi af því í byggingariðnfræði í Háskólanum í Reykjavík. Stefán útskrifaðist sem byggingariðnfræðingur og húsasmíðameistari árið 2024.
Stefán hefur starfað við ástandsskoðanir fasteigna frá 2021 og starfaði í upphafi hjá Fagmat undir leiðsögn Sigmundar G. Hermannssonar, húsasmíðameistara.
Ásamt því að sinna ástandsskoðunum höldum við einnig námskeið fyrir alla þá sem eiga, leigja eða sinna viðhaldi á fasteignum þar sem kennd eru aðalatriði þess að viðhalda húsum.
Lærðu að þekkja fasteignina þína
Við leggjum áherslu á hagnýtar upplýsingar um málefni sem skipta máli. Gera má ráð fyrir að viðhaldskostnaður fasteigna sé 1,5% - 2% af virði á ári.
Fyrsta skrefið í fyrirbyggjandi viðhaldi er að þekkja fasteignina sína og vita hvað takmörkunum hún er háð. Með betri þekkingu eykst sjálfsöryggi þegar átt er við vandamál sem tengjast húsunum sem við búum í.

