Vernd & viðhald fasteigna
Fagleg skoðun. Skýr forgangsröðun. Betri ákvarðanir.
Þjónustan okkar
Við bjóðum upp á faglegar ástandsskoðanir til að auðvelda þér ákvarðanatöku og veitum ráðgjöf á sviði byggingaframkvæmda.
Námskeið um viðhald fasteigna
Á námskeiðinu er farið yfir helstu þætti sem snúa að fasteignakaupum, viðhaldi og framkvæmdum í fasteignum ásamt því að fjallað verður um samskipti við iðnaðarmenn, fasteignasala og margt fleira. Námskeiðið skiptist á tvö kvöld og gert er ráð fyrir umræðum í lok hvers kvölds.
50+
ánægðir viðskiptavinir
3 ár
í rekstri
78
útgefnar skýrslur
Meðmæli
“Stefán hjálpaði mér að skilja hvað væri í gangi í fasteigninni minni á mannamáli. Eftir námskeiðið gekk ég um íbúðina mína og sá hana aðeins í nýju ljósi.”
— Gunnar Ólafsson“Námskeiðið stóð heldur betur undir væntingum mínum og mætti vera skylda allra sem eiga fasteignir eða eru í kauphugleiðingum. Fyrir stærstu fjárfestingu í lífi flestra skiptir gríðarlegu miklu að hafa grunnskilning á því sem skiptir mestu máli og sú þekking sem maður öðlast á námskeiðinu er eitthvað sem getur verið ómetanlegt þegar kemur að viðhaldi, fyrirbyggjandi aðgerðum og að taka sem bestar ákvarðanir. Þá er námskeiðið á mannamáli og þrælskemmtilegt á sama tíma.”
— Róbert T.“Námskeiðið hjá Vernd og viðhald er mjög gagnlegt fyrir húsasmíðameistara eins og mig sem vilja efla sig í faginu og halda sér uppfærðum. Það veitir dýpri innsýn í réttar aðferðir, ný efni og gömul sem og lausnir sem geta lengt líftíma mannvirkja og bætt gæði vinnunnar. Slík endurmenntun styrkir faglega þekkingu, eykur öryggi í framkvæmdum og getur jafnframt opnað á ný tækifæri í starfi. Þetta er því bæði skynsamleg fjárfesting í eigin hæfni og góður grunnur til að veita viðskiptavinum enn betri þjónustu.
Einnig er þetta frábært námskeið fyrir þann sem ekkert veit né kann í þessum fræðum en vill bæta við sig grunnþekkingu.”
— Óskar Bjarnason
